Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. Aðeins í Sviss er matvara dýrari en á Íslandi eða 58% yfir meðaltali ESB-landa.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að þau ætli nú að taka samtöl við fólk á markaðnum og séu að afla mikilla upplýsinga. „Það er ljóst að samkeppnin á mjög á brattann að sækja í litlu hagkerfi sem er frekar lokað með lítinn sérstakan gjaldmiðil og talsverða tollvernd á dagvörumarkaði en það er ýmislegt fleira sem við þurfum að skoða, samkeppnishindranir og aðgangshindranir.“Samkeppniseftirlitið aflar nú gagna til að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem hafa áhrif á matvöruverð. Eftirlitið k