Hátt í fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, koma hingað til lands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmsloft jarðar. Framkvæmdastjóri Geimvísindastofnunar Íslands segir þetta stærsta verkefni sem NASA hefur ráðist í hér á landi. RANNSAKA ÁHRIF ALMYRKVANS Á ANDRÚMSLOFT JARÐAR „Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu yfir Íslandi. Það gerist þegar tunglið fer fyrir sólina og kemur alveg í veg fyrir að ljós berist til jarðar að degi til. Það er töfrandi upplifun, þið sjáið fullkomið sólarlag allan sjóndeildarhringinn. Dýrin bregðast við þessu og þetta er ótrúleg upplifun,“ segir Kelly Korreck, doktor í geimeðlisfræði.Kelly fer fyrir hátt í 40 vísindamönnum á vegum NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar, sem koma hingað til lands í ágúst til að ran