Óspektir halda áfram í Norður-Írlandi vegna hnífaárásar á mánudagskvöld. Um 200 söfnuðust saman í Newtonabbey þar sem fólk sást henda hlutum í átt að lögreglu. Hún svaraði með því að sprauta vatni á hópinn til að dreifa honum.Fólk kom einnig saman í Coleraine, norðvestur af Derry eða Londonderry, í kvöld. Lögregla lokaði vegum en á fréttavakt BBC segir að vel yfir 100 séu saman komnir. Lögreglan biðji fólk að halda ró sinni en fjöldi fólks hafi hrópað „út með þá“, „samfélaginu stafar hætta af þeim“ og „þetta endar í kvöld“.Mótmæli brutust út í gær stuttu eftir að þrítugur flóttamaður frá Súdan var ákærður fyrir tilraun til manndráps, vörslu hnífs á almannafæri og hótanir. Lögregla segir hann hafa sótt um hæli 2023 stuttu eftir að hann kom til Norður-Írlands.Annað kvöldið í röð safnast mótm