Alþingi hefur samþykkt að þjóðaratkvæðagreiðsla verði hér á landi laugardaginn 29. ágúst um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.Stækkunarstjóri Evrópusambandsins sagði í sjónvarpsfréttum í gær að Íslendingar færu að miklu leyti eftir Evrópulöggjöfinni og aðlögunin sem þyrfti, umgjörðin um samningagerðina, yrði sú sama og lá til grundvallar árið 2010. Hún veiti nú þegar sveigjanleika til að hrinda í framkvæmd ákveðnum stjórnkerfisbreytingum eftir endanlegt þjóðaratkvæði um aðild. AÐLÖGUN AÐ REGLUVERKI ESB ALLTAF LEGIÐ FYRIR Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra segir að það sé skýrt, og stækkunarstjórinn staðfesti það þegar hann talar um sveigjanleika, að aðlögun hafi alltaf legið fyrir. „Það hefur alltaf legið fyrir en