Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot

Guðjón Óskarsson, tyggjóklessubaninn, hefur bætt um betur og hreinsar nú einnig krot af veggjum miðborgarinnar. Listaverk sem hann lét vinna á útkrotaðan vegg við Hringbraut í Vesturbæ Reykjavíkur er nýjasta viðbótin. Hann leitaði til vegglistamannsins Juan Arctic, sem gerði þekkt Mario Bros listaverk á grindverk við Hofsvallagötu, og hann hefur nú hafist handa við að þekja veggjakrotið á veggnum.
Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd