Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun

Hvammsvirkjun verður gangsett árið 2030 gangi allt eftir, segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli landeigenda sem stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun vegna Hvammsvirkjunar féll í dag og var íslenska ríkið sýknað af kröfu um að ógilda virkjanaleyfið.Lögmaður stefnenda segir að málinu verði að öllum líkindum áfrýjað. Landeigendurnir muni þó ekki höfða þriðja málið.Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ratar til dómstóla. Fyrra virkjunarleyfið var ógilt í Hæstarétti í fyrrasumar. Í kjölfarið lét umhverfisráðherra breyta lögum til þess að heimila áframhaldandi framkvæmdir og nýtt leyfi var gefið út á grundvelli þeirra laga. Nýja leyfið var veitt í desember, en í janúar höfðuðu landeigendur mál og fóru fram á ógildingu þess.Héraðsdómur
Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd