Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Ný bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ráða Sturlaug Haraldsson sem bæjarstjóra. Hann hefur formlega störf 19. ágúst.Sturlaugur hefur starfað við stjórnun sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis og erlendis og er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann hefur leikið með knattspyrnuliði ÍA og er í hópi leikjahæstu manna félagsins.„Mér þykir gríðarlega vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr,“ er haft eftir Sturlaugi í tilkynningu. „Þetta er skemmtilegt tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi mitt og ég vona sannarlega að ég geti gert eitthvað gagn.“Sturlaugur (fremstur fyrir miðju) ásamt bæjarstjór Akraneskaupstaðar.Aðsend
Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd