Varaformaður AFLs stéttarfélags segir uppsagnir hjá Brim á Vopnafirði hafa verið þungt högg því fyrirtækið sé stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélaginu. Brim segir að illa hafi gengið að finna verkefni fyrir starfsfólk milli vertíða og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækisins sé að tryggja að rekstur félagsins gangi vel.Tuttugu starfsmönnum var sagt upp í dag, um 30% starfsmanna í uppsjávarvinnslu Brims á Vopnafirði. Breytingarnar fela í sér að auka hlut tímabundinna vertíðarstarfa í stað heilsársstarfa.„Hljóðið er bara mjög þungt, ekki bara hjá starfsmönnum heldur bara á Vopnafirði öllum. Þetta er stærsti vinnuveitandinn á Vopnafirði þannig að þetta hittir það samfélag mjög illa,“ segir Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður AFLs.Samfélagsleg ábyrgð Brims er að tryggja að reksturinn á Vopnafirði g