Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verður ekki leystur úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið móður sinnar sem er alvarlega veik. Áfrýjunardómstóll í Osló komst að þessari niðurstöðu í dag, og sneri þar með við ákvörðun héraðsdómstóls í borginni frá því í fyrradag.Høiby lagði þessa beiðni fram, eftir að norska konungsfjölskyldan tilkynnti að móðir hans, sem þjáist af alvarlegum lungnasjúkdómi, væri orðin veikari en áður og komin á biðlista eftir nýjum lungum.Í úrskurði áfrýjunardómstólsins segir að hættan á að Høiby brjóti aftur af sér, sé jafn mikil og áður. Einnig sé talin hætta á að hann reyni að nálgast konu í Frogner hverfinu í Osló sem hann var eitt sinn í sambandi við.Høiby hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan í febrúar, þegar nýjar ásakanir komu fram á hendur
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd