Það er ótækt að skipuleggjendur viðburða líti á matarvagna sem viðskiptavini en ekki hluta af þjónustu, segir Hjalti Vignisson veitingamaður. Hjalti er óviss um hvort hann taki þátt í tónleikum Kaleo á Þingvöllum 20. júní, Bergmáli, sökum þess sem hann kallar skilningsleysi og græðgi skipuleggjenda.„Það er búið að vera draga okkur svolítið á asnaeyrunum, svo vikum skiptir, með einhver gjöld og prósentur sem við eigum að greiða til tónleikahaldara, eða einhvers aðila sem sér um tónleikana, sem er bara ekki í neinum takti við það sem þekkist á Íslandi,“ segir Hjalti í viðtali við fréttastofu. Hann rekur veitingastaðinn 2Guys og matarvagn undir sömu merkjum.Jakob Frímann Magnússon, einn skipuleggjenda Bergmáls, segir fréttastofu að það verði nóg af veitingamönnum á Þingvöllum og enginn sé sko