Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Landsvirkjun virkjunarleyfi í Þjórsá. Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Þjórsár ratar til dómstóla. Fyrra virkjunarleyfið var ógilt í Hæstarétti í fyrrasumar, en í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli breyttra laga.Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála féllst á kröfu landeigenda og ábúenda jarða á bökkum Þjórsár og stöðvaði framkvæmdir við Hvammsvirkjun í maí í fyrra. Í kjölfarið veitti Umhverfis- og orkustofnun Landsvirkjun virkjunarleyfi til bráðabirgða vegna undirbúningsframkvæmda við Hvammsvirkjun 11. ágúst í fyrra. Leyfið átti að gilda í sex mánuði.Sif Konráðsdóttir, lögmaður landeigenda, segir að dómnum verði líklega áfrýjað.„Í þessum áfanga málsins hafnaði dómurinn kröfu íslenska ríkisins og Landsvirkjunar um að vísa frá kröfu