Stjórnvöld hafa um árabil lofað að bæta úr námsgagnaskorti á Íslandi. Starfshópar hafa verið skipaðir, skýrslur skrifaðar og málþing haldið en ekkert gerist. Menntamálaráðuneytið virðist enn og aftur hafa slegið á frest frumvarpi sem efla á námsgagnagerð.Í tilkynningu sem ráðuneytið gaf út fyrir viku segir að það kalli eftir mati kennara á stöðu námsgagna í stærðfræði.Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, fór fyrir spretthópi sem Ásmundur Einar Daðason, þáverandi menntamálaráðherra, skipaði í janúar 2024. Hópurinn vann að heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna og lagði til aðgerðir til útgáfu námsgagna og var grunnur að frumvarpi sem hefur ekki verið samþykkt.Íris segir að staðan í málaflokknum sé hræðileg og að hún voni innilega að núverandi ríkisstjórn bregðist ek