Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta segir í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í svokölluðu umræðuskjali í dag.Skjalið er liður í víðtækari athugun eftirlitsins á íslenskum dagvörumarkaði.Aðeins í Sviss er matvara dýrari en á Íslandi eða 58% yfir meðaltali ESB-landa. Í Noregi er matvöruverð 32% yfir meðaltali. Í Svíþjóð og í Finnlandi er verðið aftur á móti aðeins 6% yfir meðaltali. MJÓLKURVARA 90% DÝRARI Í umræðuskjalinu er gerð nánari grein fyrir vöruverði á Íslandi og samanburði við önnur Evrópulönd. Mestar hækkanir á dagvöru urðu árið 2020, samanborið við nágrannalöndin. Matvöruverð hér á landi hefur hækkað um 46%, samanborið við 37% verðhækkun í ESB-löndunum.Af einstökum flokkum matvöru eru mjólkurvörur hér á landi dý