Nýkjörinn formaður Sósíalistaflokksins segir framkvæmdastjórn flokksins hafa tekið ákvörðun um að skrá félaga úr flokknum. Þeir sem vinni gegn flokknum eigi ekkert erindi á aðalfund. Varaformaður segir stjórnina hafa fylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar. Það sé ekki þeirra vandamál að upplýsa fólk um að það hafi verið rekið úr flokknum.