Rúmlega 500 einstaklingar hafa sett nafn sitt við undirskriftalista sem mótmælir þeirri ákvörðun innviðaráðherra að taka ferjuna Baldur úr siglingu um Breiðafjörð og færa hana til Vestmannaeyja. Þess er krafist að ákvörðuninni verði umsvifalaust breytt eða að innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, segi af sér.Undirskriftasöfnunin stendur yfir til 15. júní og sagði Björn Samúelsson, einn af forsprökkum listans, í samtali við BB.is að markmiðið væri að ná 3000 undirskriftum, sem er sama atkvæðatala og Eyjólfur fékk í síðustu kosningum, þegar hann var kjörinn á þing.Baldur mun sigla milli lands og Vestmannaeyja fram í miðjan júní en hefja á ný áætlunarferðir um Breiðafjörð þann 19. júní. Ferjan Særún mun sinna siglingum á milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs.