Brim segir upp hluta starfsmanna á Vopnafirði

Útgerðarfélagið Brim segir upp 20 manns sem starfa við uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á Vopnafirði. Vísir greindi fyrst frá.Þar segir að fyrirtækið hafi boðað starfsmenn til fundar í dag. Samkvæmt heimildum Vísis verði 20 manns sagt upp fastráðningu og þeim boðnir lausasamningar í staðinn.Sú tala samsvarasr um 30% allra þeirra sem starfa fyrir uppsjávarvinnslu Brim á Vopnafirði. Í Vopnafjarðarhreppi búa rúmlega 600 íbúar.
Brim segir upp hluta starfsmanna á Vopnafirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd