Matvara á Íslandi er 55 prósentum dýrari en í Evrópusambandinu og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað hlutfallslega mest hér á landi frá 2020. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.