Norrænu almannaþjónustumiðlarnir SVT, DR og NRK og eistneski miðillinn Delfi birtu niðurstöður sameiginlegra rannsókna sinna í morgun, en þær byggja einkum á samanburði gervihnattamynda frá svæðum nærri landamærum Rússlands við Noreg, Finnland og Eystrasaltsríkin.Gervihnattamyndir sýna nýjar herbúðir, ný svæði fyrir ökutæki og önnur hergögn á rússneskum stöðvum frá Kólaskaga til Kalíníngrad. Miðlarnir skoðuðu hvernig skógar hafa verið ruddir, gamlar herstöðvar hafa verið endurbyggðar og aðrar stækkaðar, verkstæði og herbúðir reistar svo að auðveldlega mætti koma þar fyrir á bilinu 80-115 þúsund hermönnum. Að mati heimilda miðlanna gæti Rússland jafnframt nýtt járnbrautakerfi sitt til að færa lið og búnað hratt frá öðrum hlutum landsins. Svipuð mynd hefur birst í öðrum opnum greiningum, með