Ófullnægjandi undirbúningur hefur haft neikvæð áhrif á innleiðingu og framkvæmd farsældarlaga. Þetta er niðurstaða stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar.Lög um farsæld barna tóku gildi í upphafi árs 2022 í ráðherratíð Ásmundar Einars Daðasonar. Markmið þeirra er að tryggja að börn og foreldrar sem þurfa stuðning hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. ÓRAUNHÆFAR VÆNTINGAR UM AUKNA FARSÆLD BARNA Ávinningsmat sem var unnið í aðdraganda lagasetningarinnar byggir á þeirri forsendu að með farsældarlögunum megi fækka áföllum barna og auka seiglu þeirra með því að bregðast við um leið og þörf fyrir þjónustu kemur upp.Ekkert í lögunum fjallar þó um að auka þjónustu, stytta bið eða fjölga og bæta úrræði sem þurfa að vera til staðar. Ríkisendurskoðun telur að matið hafi vakið óra