Stjórnvöld gera ráð fyrir að afkastageta Sæbrautar tvöfaldist þegar hún verður sett í stokk. Einnig er gert ráð fyrir að um 33 þúsund farþegar fari um skiptistöð Borgarlínu sem á að reisa ofan á stokknum þegar hún verður komin í fulla notkun 2040.Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hann spurði út í afkastagetu Sæbrautar og umferð um Borgarlínu þegar komið er fram á árið 2040.Stefnt er á að setja Sæbraut í stokk á 850 metra kafla. Þar verða tvær akreinar í hvora átt og aðreinar og fráreinar sem tengjast gatnamótum. Því er gert ráð fyrir að í stokknum verði að jafnaði þrjár akreinar í hvora átt.„Áætlað er að afkastageta (ökutæki á klst.) Sæbrautar á þessum kafla rúmlega tvöfaldist frá því sem