Fresta dómsuppsögu yfir manni sem sakaður er um að þvinga eiginkonu sína í vændi

Dómstóll í Harnosand í Svíþjóð hefur frestað því að kveða upp dóm yfir rúmlega sextugum manni sem sakaður er um að hafa þvingað eiginkonu sína í vændi með yfir hundrað vændiskaupendum.Saksóknarar hafa farið fram á tíu ára fangelsi yfir manninum, sem neitað hefur öllum sakargiftum og hefur verið í varðhaldi síðan hann var handtekinn í október í fyrra. Manninum er gefið að sök að hafa gert auglýsingar og tekið við greiðslu frá um 120 vændiskaupendum; hann er einnig ákærður fyrir átta tilvik nauðgunar.Málið hefur vakið mikinn óhug í Svíþjóð. Það þykir minna á umtalað mál frönsku konunnar Gisele Pelicot, en eiginmaður hennar var dæmdur fyrir að hafa byrlað Pelicot eitur og leyft fjölda manna að nauðga henni.Saksóknarar segja að konan sé manneskja í mjög viðkvæmri stöðu. „Ég held því fram að ha
Fresta dómsuppsögu yfir manni sem sakaður er um að þvinga eiginkonu sína í vændi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd