Allir sýknaðir í vinnulyftumáli þar sem fimm létust

Héraðsdómur Solna í Svíþjóð sýknaði í morgun þrjá menn, forstjóra byggingarfyrirtækis og tvo menn sem settu upp vinnulyftu á byggingarsvæði þess í Sundbyberg í Norðvestur-Stokkhólmi, af því að hafa valdið dauða fimm annarra á aldrinum 25 til 63 ára þegar festingar lyftunnar brustu og hún féll niður níu hæðir húss í byggingu.
Allir sýknaðir í vinnulyftumáli þar sem fimm létust

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd