Andlátum fjölgar um 100% á næstu 20 árum. Þetta kemur fram í gögnum kirkjugarðaráðs sem hefur yfirumsjón með yfir 350 kirkjugörðum um allt land. Bálförum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Kirkjugarðaráð segir það gríðarlegt hagsmunamál fyrir bæði ríki og sveitarfélög að sem flestir velji bálför að þessu jarðlífi loknu.Í samantekt frá kirkjugarðaráði kemur fram að launakostnaður kirkjugarða hefur vaxið hraðar en framlag ríkisins. Hærra launahlutfall af heildartekjum þýðir að minna fer til umhirðu garða, viðhalds mannvirkja og endurnýjunar eigna. Ástandið versnar eftir því sem öldruðum fjölgar. Mannfjöldaspá Hagstofunnar sýnir mikla fjölgun 67 ára og eldri á næstu 20 árum.Bálstofan hefur verið opin frá 1948 en fram til 2005 voru ekki margir brenndir. Síðustu ár hefur orðið mikil fjölgun og