Jón Ferdínand lagði Sæþór Benjamín í formannskjöri

Jón Ferdínand Estherarson var kosinn formaður Sósíalistaflokks Íslands á aðalfundi flokksins um helgina. Hann hafði betur gegn Sæþóri Benjamín Randalssyni sem var formaður framkvæmdastjórnar flokksins. Jón Ferdínand hefur verið formaður Sósíalistafélags Reykjavíkur.Sæþór Benjamín bauð sig að því loknu fram til varaformanns og var sjálfkjörinn. 21 var kosinn í miðstjórn flokksins og fimm í trúnaðarráð.Skipulagi flokksins var breytt þannig að ein miðstjórn var kosin í stað þriggja stjórna áður. Þetta var því í fyrsta skipti sem formaður flokksins er kosinn.Aðalfundarfulltrúar samþykktu einnig ályktun þar sem lýst er andstöðu við aðild að ESB.Merki og húsnæði Sósíalistaflokks Íslands.RÚV / Ragnar Visage
Jón Ferdínand lagði Sæþór Benjamín í formannskjöri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd