Fimmti hver landsmaður er innflytjandi

Einn af hverjum fimm landsmönnum er innflytjandi. Þetta kemur fram í tilkynningu Hagstofunnar um skiptingu landsmanna 1. janúar. Þá voru 19,6 prósent landsmanna innflytjendur og hafði hlutfallið hækkað úr 18,9 prósentum frá fyrra ári. 2012 var hlutfallið 7,4 prósent.Alls bjuggu 77.226 innflytjendur á Íslandi um áramót. Innflytjendur af annarri kynslóð voru 8.351 talsins, 2,1 prósent allra landsmanna. Hverjir eru innflytjendur? „Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir h
Fimmti hver landsmaður er innflytjandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd