Nota flugdelluna til að efla alþjóðasamskipti

Flugsveit hans hátignar Karls Bretakonungs er í Íslandsheimsókn og lenti á Akureyrarflugvelli í dag. Flugmennirnir sögðu útsýnið á leiðinni hafa verið stórbrotið og eru spenntir að sjá landslagið á leið til Reykjavíkur á morgun.Bretar kalla flugsveitina The Royal Air Squadron. Hún hefur verið starfandi frá 1966 og er klúbbur með um hundrað flugmenn sem fljúga litlum, léttari vélum. Árið 2016 fékk klúbburinn konunglega nafnbót og verndari hans er í dag Karl Bretlandskonungur.Breskir flugmenn á vegum Karls Bretakonungs eru í Íslandsheimsókn og ætla að hitta flugáhugamenn hérlendis. Þeir segja förina ævintýri fyrir sig, en hún feli líka í sér diplómasíu.Sveitinni er stundum ruglað við breska flugherinn. Hermenn eru þeir ekki, þó að sumir þeirra hafi áður flogið fyrir herinn.Reynslan í hópnum
Nota flugdelluna til að efla alþjóðasamskipti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd