Morgunblaðið birti í gær grein Bjarna Þórs Bjarnasonar prests þar sem hann lýsir reynslu sinni af kortasvikum. Greinin vakti töluverða athygli en svo virðist sem Bjarni muni þurfa að sitja uppi með tjónið af tveimur kortafærslum sem hann kannast ekki við, upp á um 424.000 kr. samanlagt.