Í Skaftholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er rekið heimili og vinnustaður fyrir fólk sem þarf verndað og stuðningsríkt umhverfi, samhliða lífrænum búskap og matvælaframleiðslu. Kýr eru til dæmis á bænum, sem ganga með kálfana undir sér og nautið Bessi á líka heima í Skaftholti. En aðalmálið þessa dagana er hænan og andarunginn.„Já þessi litli andarungi kom heim til okkar klukkan eitt um nótt og kisurnar mínar þrjár heima fundu hann,” segir Claudia Breitsprecher, framkvæmdastjóri Skaftholts, sem ákvað svo að fara með ungann til hænu í hænsnakofanum.„Hún tók bara strax á móti honum, hún var ekki einu sinni hissa á því hvort þetta væri eitthvað öðruvísi. Hún bara opnaði vængina og hann fór bara beint undir,” segir Claudia alsæl með viðbrögð hænunnar.Unginn var svo einn með hænunni í nokkra da