„Við erum náttúrlega alsæl með þetta. Þetta er eitthvað sem við höfum talað fyrir og barist fyrir í gegnum tíðina,“ segir Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, um það að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.Bókunin kveður á um heimild til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Anna Lára segir þetta mikla réttarbót og stuðning við réttindi fatlaðs fólks til framtíðar litið.„Þetta eykur réttarvernd vegna þess að þessi valfrjálsa bókun kveður á um auka kæruleið þegar allar kæruleiðir innanlands hafa verið fullnýttar. Þá er hægt að skjóta málum til sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“Álit nefndarinnar er ekki b