Stöku skúrir víða um land

Landsmenn geta flestir hverjir búist við einhverjum skúrum í dag. Veðurstofan spáir hægum vindi víðast hvar en norðanlands verður strekkingur þegar líður á daginn. Hiti verður á bilinu átta til sextán stig.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, og víða líkur á skúrum, en hægari suðvestanlands. Hiti 8 til 16 stig, en hvessir síðdegis og kólnar norðaustan- og austanlands með rigningu eða súld. Hægari seint í kvöld og nótt. Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13 á morgun og víða bjart.Rigning með köflum eða skúrir síðdegis, en súld norðan- og austanlands annað kvöld. Hlýnar heldur.
Stöku skúrir víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd