Úrskurðarvinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.