Eldhúsdagsumræður í kvöld — styttist í þinglok

Eldhúsdagsumræður verða á Alþingi í kvöld, venju samkvæmt á síðustu dögum þingsins. Þá ræða þingmenn framvindu þingstarfa, stefnu ríkisstjórnarinnar og fjármál svo eitthvað sé nefnt.Eldhúsdagsumræður verða haldnar í kvöld.RÚVÞingflokksformenn hafa síðustu daga reynt að komast að samkomulagi um þinglok og markmiðið er að síðasti starfsdagur þingsins verði á föstudag. Þótt enn eigi eftir að afgreiða nokkur mál og ræða fjármálaáætlun í síðari umferð þykir ekki ólíklegt að unnt verði að ljúka störfum þá en viðbúið þykir að nokkra daga þurfi til viðbótar. Eldhúsdagur var eftir fornu máli nýttur til að gera hreint í eldhúsi og öðrum vistarverum og ganga frá ýmsu sem legið hafði á hakanum.
Eldhúsdagsumræður í kvöld — styttist í þinglok

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd