Nick Reiner er rúmlega þrítugur og sakaður um að hafa orðið foreldrum sínum að bana, leikstjóranum Rob og ljósmyndaranum Michele Singer Reiner, í desember. Hann hefur farið fram á að fá aðgang að sjóði sem þau stofnuðu í hans nafni skömmu eftir fæðingu og telur um 1,5 milljónir bandaríkjadala. Þau fundust stungin til bana á heimili sínu og sonur þeirra var fljótlega handtekinn grunaður um morðin. Nick Reiner segist í 136 blaðsíðna rökstuðningi ekki hafa getað greitt himinháan lögfræðikostnað til stjörnulögfræðingsins Alans Jackson eftir að hann var handtekinn því hann hefði ekki fengið aðgang að því fé úr sjóðnum sem honum bar síðustu tvö ár. Jackson sagði sig frá málinu.Lögmenn Reiners segja hann hafa átt að fá helming sjóðsins greiddan út á þrítugsafmælinu og afganginn fimm árum síðar, þ