Allt með kyrrum kjörum eftir árásir Bandaríkjamanna

Allt er sagt með kyrrum kjörum meðfram suðurströnd Hormússunds eftir að Bandaríkjaher gerði þar árásir fyrr í kvöld. Kona gengur framhjá veggmynd í Teheran sem sýnir flugskeyti stefna að bandarísku herskipi.AP / Vahid SalemiÍranska ríkisfréttastöðin IRIB greindi frá þessu á tólfta tímanum í kvöld. Bandaríkjaher segir árásirnar gerðar í varnarskyni og í kjölfar þess að herþyrla var skotin niður yfir Hormússundi í gær. Flugmenn hennar sluppu báðir ómeiddir. Íranskir ráðamenn segjast ekki bera ábyrgð á atlögunni að þyrlunni, her landsins hafi engar árásir gert við sundið undanfarinn sólarhring. Árásum Bandaríkjamanna verði svarað með tilheyrandi hætti.
Allt með kyrrum kjörum eftir árásir Bandaríkjamanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd