Olía sést greinilega í Kópavogslæk og megn olíulykt í samræmi við það. Hanna Fríða Jóhannsdóttir, íbúi í Kópavogi, deildi myndum af læknum á hverfishóp á Facebook fyrr í dag.Í fyrra fékk Kópavogsbær 122 milljónir króna í styrk frá Evrópusambandinu til að bæta vatnsgæði Kópavogslækjar og vakta ástand hans. Styrkurinn var hluti af verkefninu LIFE ICEWATER.Í samtali við fréttastofu segir Hanna það hafa verið sláandi að koma að læknum í dag. Hún hafi reynt að ná í þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en enginn svarað þrátt fyrir margar hringingar. Hún ætli að tilkynna mengunina til Heilbrigðiseftirlits Kópavogs.Mestar áhyggjur segist Hanna hafa af lífríki í læknum og í Kópavogstjörn.Hún segist ganga í Kópavogsdal nær daglega og oft hafa orðið vör við mengun í læknum. Það sé til að mynda oft megn lykt