Ísland trónir enn á toppi lista áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace (IEP) sem friðsælasta land í heimi. Stofnunin hefur gefið út heimsfriðarstuðul sinn, Global Peace Index, frá árinu 2007. Ísland hefur allt frá 2008 verið hæst á lista og er þetta því nítjánda árið í röð sem IEP útnefnir Ísland sem friðsælasta land í heimi.Heimsfriðarstuðullinn nær til 163 landa og 99,7% jarðarbúa og er byggður á 23 vísum á þremur sviðum, þ.e. samfélagslegu öryggi, átökum bæði innanlands og erlendis og vígbúnaðarstigi.Samkvæmt skýrslu IEP hefur dregið úr friðsæld í heiminum síðan árið 2025 og búa íbúar 119 landa við minni friðsæld núna heldur en árið 2008.Lokaeinkunn Íslands í úttektinni var 1,161 en gefin er einkunn á bilinu 1 til 5. Því lægri einkunn, því meiri friðsæld. Í skýrslunn