Risastórt fyrir Gunnlaug að komast inn á sterkasta golfmót í heimi

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér í gærkvöld þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi með því að enda meðal fjögurra efstu í loka úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Við heyrðum í Ólafi Loftsson afreksstjóra Golfsambandsins í dag og báðum hann um að setja þetta íþróttaafrek í samhengi.„Þetta er risastórt. Þetta er einfaldlega sterkasta golfmót í heimi. Af risamótunum hvað styrkleika mótanna varðar, þá er þetta talið sterkasta risamótið. Þannig það er ekki hægt að fara lengra en inn á þetta mót,“ sagði Ólafur Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands við RÚV í morgun. KOM AFREKSSTJÓRANUM EKKERT Á ÓVART Af risamótunum fjórum hjá karlkylfingum, Mastersmótinu, PGA meistaramótinu, Opna breska mótinu og Opna bandaríska er það síðast nefnda talið erfiðast. „Það eru y
Risastórt fyrir Gunnlaug að komast inn á sterkasta golfmót í heimi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd