Gunnlaugur Árni Sveinsson náði í kvöld því frækna afreki að tryggja sér þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið er eitt fjögurra risamóta ársins hjá karlkylfingum.Gunnlaugur vann sig inn á mótið með frábærri spilamennsku í Ohio á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska mótið. Aðeins fjórir efstu kylfingarnir á úrtökumótinu unnu sér inn sæti á meistaramótinu, en leiknar voru 36 holur í dag.Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér í kvöld þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrsti íslenski karlinn til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla.Að þeim loknum var aðeins efsti maðurinn, Davis Thompson frá Bandaríkjunum öruggur inn á samtals ellefu höggum undir pari. Gunnlaugur Árni var svo einn fjögurra sem vor