Spellvirki hafa verið unnin á friðuðum fornleifum nærri Hafnarfjarðarkaupstað. Mannvirki var reist í 150 ára gamalli fjárborg sem talið er að nýta eigi sem gufubað.Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður gerði sér ferð að fornminjunum eftir að hann heyrði af spellvirkinu á samfélagsmiðlum, frá gönguhópum sem gengu fram á verknaðinn.„Þetta lítur svolítið út eins og hér séu einhverjar skipulagðar framkvæmdir í gangi, bæði þessi smíð, hér hafa náttúrulega verið einhver væg veisluhöld, svo er búið að grafa hérna heilmikla gröf ofan í botninn á borginni og lítur svolítið út eins og menn hérna séu að búa til viðarkol,“ segir PállFjárborgin heitir Óttarstaðaborg eða Kristrúnarborg og er kennd við Kristrúnu Sveinsdóttur sem ásamt vinnumanni sínum Guðmundi Sveinssyni hlóð borgina sumarið 1870, fyrir r