Tveggja ára fangelsisdómur fyrir umferðarlagabrot

Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt af Héraðsdómi Reykjaness fyrir umferðarlagabrot. Manninum er einnig gert að greiða tæpar 600 þúsund krónur í sakarkostnað og 177 þúsund krónur í þóknun til verjanda síns.Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa laugardaginn 21. desember árið 2024 og mánudaginn 9. júní árið 2025 ekið bifreið „sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna“. Lögregla stöðvaði manninn við akstur í Reykjanesbæ í bæði skipti.Í blóðsýnum sem tekin voru úr manninum eftir bæði atvik mældist amfetamín og tetrahýdrókannabínól eða THC.Í dómnum segir að maðurinn hafi játað sök samkvæmt ákæru afdráttarlaust. Þar sem játning ákærða samrýmdist rannsóknargögnum taldist sannað að maðurinn væri sekur um þ
Tveggja ára fangelsisdómur fyrir umferðarlagabrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd