Íslendingur sem saknað var á Taílandi er í haldi innflytjendayfirvalda þar í landi. Ekkert hafði spurst til Sindra Freys Jenssonar í rúmlega tvær vikur þar til í nótt þegar fjölskylda hans fékk bréf þar sem ræðismaður Íslands í Taílandi staðfesti að Sindri Freyr væri í innflytjendafangelsi í Bangkok.„Við fáum engar upplýsingar um hvernig honum líður,“ segir Erla Björg Jensdóttir, systir Sindra Freys. „Við vitum bara að aðstæður þarna eru hörmulegar.“Sindri Freyr var í fríi í Pattaya í austurhluta Taílands ásamt tvíburabróður sínum en þeir urðu viðskila 23. maí, fyrir rúmlega tveimur vikum.Erla Björg segir hræðilegt að geta hvorki verið í samskiptum við hann né fengið upplýsingar um líðan hans. Hún telur líklegt að Sindri Freyr hafi verið handtekinn daginn sem hann varð viðskila við bróður