Gat ekki höfðað skaðabótamál gegn SAS á Íslandi

Tveimur málum gegn flugfélaginu SAS, þar sem farið var fram á skaðabætur vegna flugferða, var vísað frá Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Fyrirtækið HF15, í eigu Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, höfðaði þau bæði en hann rekur vefinn flugbaetur.is.Flugferðirnar sem bóta var krafist fyrir voru milli Kristiansund og Oslóar annars vegar og Stavanger og Kaupmannahafnar hins vegar.Í fyrra fluginu var farþeganum, að hans sögn, neitað um far vegna yfirbókunar. Seinna fluginu var aflýst.Kröfurnar um 400 evrur í staðlaðar bætur framseldu farþegarnir, sem eru báðir íslenskir, til HF15 sem fór með þær fyrir dóm. KRAFÐIST 7000 EVRA Í MÁLSKOSTNAÐ Í HVORU MÁLI Eftir að hafa fengið skaðabótakröfur beggja farþega framseldar gerði HF15 kröfu um samtals 7.400 evrur, rúmlega milljón íslenskra króna að
Gat ekki höfðað skaðabótamál gegn SAS á Íslandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd