Færri tilkynningar um kynferðisbrot en fleiri um ofbeldi

Tilkynningum um kynferðisbrot fækkaði um rúmlega helming á höfuðborgarsvæðinu í maí en fleiri brot hafa verið tilkynnt til lögreglu það sem af er ári en á sama tíma undanfarin tvö ár. Ofbeldisbrotum fjölgaði milli mánaða og alvarlegar líkamsárásir voru færri.616 ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er ári, sem er fækkun um 79 miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt afbrotatölfræði lögreglu. Þar eru ofbeldisbrot skilgreind sem manndráp eða líkamsmeiðingar.124 þessara brota rötuðu á borð lögreglu í maí, þar af 23 stórfelldar líkamsárásir, um 3% minna en meðaltal síðustu tólf mánaða.Tólf kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu í maí, rúmlega helmingi færri en í apríl þegar þau voru tuttugu og átta. Þrjátíu kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglunna
Færri tilkynningar um kynferðisbrot en fleiri um ofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd