Elkem hefur tekið ákvörðun um að stilla af framleiðslu sína vegna tolla Evrópusambandsins. Slökkt var á einum ofni, þeim stærsta, af þremur ofnum í járnblendingsverksmiðju félagsins á Grundartanga þann fyrsta júní.Þetta segir Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, í samtali við fréttastofu. RÁÐA EKKI Í SUMASTÖRF Kveikt verður aftur á ofninum í lok sumars. Ákveðið var að draga úr framleiðslu yfir sumartímann svo að aðgerðin hefði sem minnst áhrif á starfsfólk Elkem, sem fer í sumarfrí og verður ekki sagt upp að sögn Álfheiðar. Á móti kemur að lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf hjá félaginu segir Álfheiður. Venjulega hefur Elkem á Íslandi ráðið 60 ungmenni í sumarvinnu en í sumar getur félagið einungis ráðið 20.Ákvörðunin um að draga úr framleiðslu var tekin vegna erfiðra markað