Lífeyrissjóðurinn Birta telur afar óheppilegt að Kvika banki hafi tilkynnt um uppsagnir ellefu starfsmanna samhliða rúmlega tíu milljarða króna sérstakri arðgreiðslu. Sjóðurinn er þriðji stærsti hluthafi Kviku banka. Þetta kemur fram í svari frá staðgengli framkvæmdastjóra sjóðsins, Kristjáni G. Péturssyni, í tölvupósti. Framkvæmdastjóri sjóðsins, Ólafur Sigurðsson, hafði ekki tök á að svara spurningum um uppsagnirnar og arðgreiðsluna.Orðrétt segir í svari sjóðsins:„Það er mat Birtu lífeyrissjóðs að þær uppsagnir sem Kvika banki réðst í rúmist innan þess umboðs sem stjórnendur bankans hafi á hverjum tíma og sér ekki ástæðu til að draga réttmæti þeirra í efa, svo fremi sem gætt sé að réttindum þeirra starfsmanna sem í hlut eiga.Mat stjórnenda bankans var að ráðast hefði þurft í hagræðingara