„Svona breytingar leiða yfirleitt til þess að það er verið að fækka störfum“

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa áhyggjur af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta. Formaður stjórnar SSNV segir þetta enn eina aðförina að þjónustu á landsbyggðinni. „Við erum bara mjög hrædd um það að þetta sé enn ein aðförin að því að draga úr þjónustu hins opinbera gagnvart íbúum. Við höfum bara áhyggjur af því að á endanum komi þetta bara niður á íbúum og þeirri þjónustu sem lögreglan er að veita í dag,“ segir Einar E. Einarsson, formaður stjórnar SSNV.Til stendur að fækka lögregluembættum landsins úr níu í fimm. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að frumvarp þess efnis verði lagt fram í haust og komi til með að efla löggæslu og fjölga lögreglumönnum. Vinna við breytingarnar er enn á frumstigi og haft verður samráð við lögregluna um land allt.Sigurður Hólma
„Svona breytingar leiða yfirleitt til þess að það er verið að fækka störfum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd