Rafmagnið tekið af Snæfellsnesi og Borgarfirði í tvo tíma

Rafmagnslaust verður á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði í tvær klukkustundir aðfaranótt fimmtudags.Starfsmenn Landsnets ráðast þá í viðhald á tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rariks á Vatnshömrum. Vinna hefst klukkan tíu mínútur yfir tólf á miðnætti og er gert ráð fyrir að hún standi í tvær klukkustundir.Í tilkynningu Rariks um viðgerðina eru viðskiptavinir beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir vegna yfirvofandi rafmagnsleysis um leið og þeir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda.Rafmagnslaust verður í um tvær klukkustundir upp úr miðnætti aðfaranótt fimmtudags.Rarik
Rafmagnið tekið af Snæfellsnesi og Borgarfirði í tvo tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd