Varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra staðfesti við fréttastofu í dag að þeir tveir sem hefðu verið handteknir í sameiginlegri aðgerð Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og sérsveitar ríkislögreglustjóra á föstudagskvöldið væru lausir úr haldi. Fólkið var handtekið í miðbænum á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO.Fólkinu var sleppt um helgina að loknum yfirheyrslum og ekki hefði verið gerð krafa um gæsluvarðhald yfir þeim.Að sögn varðstjóra gengur rannsóknin á málinu vel og er lögreglan komin með góða mynd af málavöxtum.Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nóttLögreglustöðin á AkureyriRÚV / Kristófer Óli Birkisson