Þrjátíu og tveir, hið minnsta, fórust á Filippseyjum í morgun þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir. Þá er talið að yfir 200 manns hafi slasast. Nokkurra er enn saknað. Skjálftinn var 7,8 að stærð. Hann reið yfir eyjuna Mindanao og olli flóðbylgju sem var einn metri að hæð. Áður hafði verið tilkynnt að 15 manns hafi farist í skjálftanum. Varað hefur verið við eftirskjálftum og er fólk hvatt til að bíða með að snúa aftur í hús sem skemmdust í skjálftanum. Hús í borginni General Santos sem hrundi í skjálftanum í morgun.AP / Uncredited