Gefur lítið fyrir áhyggjur fyrrverandi sendiherra

„Ég vil bara undirstrika að Evrópusambandsaðild myndi hafa engin áhrif, engu breyta um þann samning sem er í gildi milli Bandaríkjanna og Íslands, varnarsamninginn frá 1951,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Þetta var svar hennar við fyrirspurn Stefáns Vagns Stefánssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í morgun. Stefán Vagn vísaði í grein eftir Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra, sem birtist í Morgunblaðinu í morgun þar sem hann veltir því upp hvaða áhrif möguleg aðild að Evrópusambandinu hefði á varnarsamninginn.Gunnar rekur að með aðild yrði Ísland hluti af sameiginlegum varnaráætlunum sambandsins og alls óvíst að Bandaríkin telji það í verkahring sínum að annast varnir eins af aðildarríkjum sambandsins. Hann telur í það minnsta að stjórnvöld þurfi
Gefur lítið fyrir áhyggjur fyrrverandi sendiherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd